fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ein afleiðing þessa mikla hagnaðar bankanna er að þeir geta skilað arði til eigenda sinna og í þessu tilfelli fær ríkið töluverða hlutdeild í því vegna þess að ríkið á auðvitað Landsbankann að fullu og svo hlut í hinum stóru bönkunum. Ég er þeirrar skoðunar að ríkið eigi ekki endilega að vera ráðandi aðili á þessum markaði. Ríkið á að halda áfram að eiga einn banka, eins og við eigum í dag. Hvort það er í 100% eða 80% ætla ég ekki að úttala mig um. Ég er til í að skoða að selja hluta af honum ef það er þá inn í dreifða eignaraðild eða gert með heilbrigðum hætti, en mér finnst skipta máli að ríkið eigi ráðandi hlut í Landsbankanum, a.m.k. á komandi árum. Ég sé enga ástæðu til þess að ríkið fari út í að selja þann hlut eins og hv. þingmaður nefnir að ýmsir hafi áhuga á.
Síðan tel ég að eignarhaldið á hinum bönkunum tveimur sé nokkuð sem við eigum líka að ræða. Eignarhaldið á hinum stóru bönkunum getur ekki verið þannig að þeir séu hér í langtímaeigu erlendra kröfuhafa. Það er alveg ljóst að það mun breytast og það innan einhverra missira og þá skiptir máli með hvaða hætti þessar eignir skipta um hendur. Ég er ekki tilbúin að taka þátt í eða horfa upp á að þá verði skapaðar einhverjar þær aðstæður að aðrir hrægammar geti staðið á kantinum og keypt þær eignir á hrakvirði. Þess vegna skiptir máli að mínu mati gagnsæi í allri meðferð þeirra mála hvað það varðar sem menn hafa áhrif til þess að eignarhlutirnir í þeim bönkum muni skipta um hendur.