fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Ég gæti ekki verið meira sammála. Mér heyrist hv. þingmaður vera mjög nálægt mér í skoðunum í þessum efnum og kannski nær mér en sum flokkssystkini hennar sem hafa kannski tekið opnar á þessu með bónusana.
Það sem vekur náttúrlega undrun manns er, eins og hv. þingmaður kom aðeins inn á, hversu fljótt þetta virðist ætla að sækja í sama farið aftur. Kerfið sem býr ekki við sterkari stöðu í almenningsálitinu en raun ber vitni eftir hrunið, og þá er ég ekki bara að tala um Ísland heldur fjármálakerfi okkar yfirleitt, er strax lagt af stað í sömu átt. Má til dæmis vísa til umræðunnar í Bretlandi þar sem fólk er alveg rasandi og hneykslað á því að bankar sem ríkið þurfti að bjarga og hafa verið reknir með tapi jafnvel að undanförnu eru byrjaðir á bónusgreiðslum. Menn hafa glímt við þetta með ýmsum hætti en mér finnst það allt saman heldur loppið. Bretarnir fóru þá leið að segja: Ja, ef þið ætlið að borga ykkur háa bónusa munum við taka gríðarlega mikið af því í skatt o.s.frv.
Ég sakna þess dálítið og hef lýst eftir því aftur og aftur í umræðunni að við ræðum sjálfan grundvöllinn undir því hvers vegna þetta þurfi í þessari starfsemi.