fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Einu efnislegu ástæðurnar sem maður hefur heyrt í umræðunni eru gagnvart minni aðilum, þ.e. þeim sem vilja nota þessa leið til að deila ágóðanum þegar betur gengur eða meira kemur inn með starfsfólki sínu sem síðan situr með lægri tekjur þess á milli. Það eru einu efnislegu rökin sem ég hef heyrt, en ég hef ekki heyrt mörg önnur efnisleg rök fyrir þessu. Ég ætla ekkert að segja að allt bónuskerfi í allri mynd sé ómögulegt, ég er ekki til í það, en ég vil hins vegar fá að heyra betri efnisleg rök fyrir því að þetta sé gert. Þó að ég loki ekki alveg fyrir að menn noti þetta kerfi, ef þeir rökstyðja það vel, finnst mér samt sérkennilegast af öllu þetta með regluverðina, eftirlitið og áhættustýringuna. Mér finnst það skrýtið og það er ekki rökstutt í frumvarpinu.