fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa spurningu. Þarna erum við farin að ræða dálítið hjartað í þessu öllu saman, eignarhaldið og hvers vegna ég tel að það skipti máli að ríkið eigi einn banka eins og er í þessu tilfelli. Ég tel að Landsbankinn hafi að mörgu leyti staðið sig ágætlega. Það er ákveðið þak og aðhald á launum bankastjóra en það hefur ekki breytt neinu hvað varðar laun bankastjóra hinna bankanna. Fordæmið þar skilar sér ekki í lægri launum hjá bankastjórum annarra banka.
Síðan tel ég líka að Landsbankinn hafi staðið sig ágætlega í því að ganga lengra á síðasta kjörtímabili, t.d. í því að koma til móts við viðskiptavini sína í því að leiðrétta þeirra lán og koma til móts við þá að öðru leyti vegna þess að hann gekk lengra en sumar aðrar fjármálastofnanir. Að mörgu leyti hefur hann gengið áfram með góðu fordæmi, en ég er sammála hv. þingmanni, (Forseti hringir.) það þarf að gera betur.