fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Mig langar líka að koma inn á áhættusækni bankanna og hvort við séum ekki að fara svolítið á þá braut aftur með því að heimila aftur kaupauka og bónusa með sama hætti og hv. þingmaður kom vel inn á í sinni ræðu áðan. Er í þessu frumvarpi nægilega gætt að neytendavernd? Kaupaukarnir miðuðust á sínum tíma allir við að fjármálafyrirtækin græddu sem mest og þeir sem voru þar í stafni höfðu þá mikinn hag af því. Ég velti því upp áðan hvort ekki ætti að snúa dæminu við og menn fengju þá einhvern kaupauka fyrir það að hagur neytandans væri virtur og að viðskiptavinir bankanna nytu góðs af því (Forseti hringir.) að vextir og þjónustugjöld lækkuðu, (Forseti hringir.) eitthvað í þeim dúr.