fjármálafyrirtæki.
Hæstv. forseti. Ég er sammála hv. þm. Birgittu Jónsdóttur um mikilvægi þess að halda Landsbankanum í opinberri eigu. Hún nefndi tvö atriði í því sambandi. Í fyrsta lagi benti hún réttilega á að Landsbankinn er gullegg. Við fengum á milli 20 og 30 milljarða á árinu 2014 inn í skatthirslu ríkissjóðs vegna eignarhaldsins. Þetta er ein ástæðan fyrir því að Viðskiptaráð vill selja hann eða koma honum í hendur skjólstæðinga sinna.
Hitt atriðið sem þingmaðurinn nefndi var óvissuástandið sem við búum við núna. Ég er þeirrar skoðunar að til að draga úr óvissunni til frambúðar þurfi þessi kjölfesta að vera fyrir hendi.
Varðandi litla banka og tilraunastarfsemi í þeim efnum er ég algjörlega sammála og vek athygli á því að í síðustu borgarstjórnarkosningum lagði einn frambjóðandi, Þorleifur Gunnlaugsson, það til að borgin (Forseti hringir.) færi út á þessa braut og fetaði þannig í fótspor margra sveitarfélaga í Bandaríkjunum.