144. löggjafarþing — 77. fundur,  4. mars 2015.

fjármálafyrirtæki.

571. mál
[19:02]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessi svör og vekja athygli hans á öðru sem mér finnst mjög einkennilegt varðandi þessa lagasetningu og allan rammann. Þá er ég alls ekki að álasa okkur stjórnvöldum eða okkar ráðuneyti, ég held að þar hafi verið unnið mikil vinna til þess að reyna að bæta rammann, vegna þess að í tilskipuninni upphafinu er gefinn rammi til þess að veita allt að 100% kaupauka til þeirra sem eru í lykilstöðum og taka ákvarðanir um áhættu og annað sem gildir með þau stóru fyrirtæki sem hafa svona mikil áhrif á allt samfélagið þegar þau falla, allt að 100%. Ef hluthafafundur tekur ákvörðun um að hann megi vera 200% þá sé það líka leyft. Hvað finnst hv. þingmanni um svona ramma? Hvaða íbúar hvaða lands óskuðu eftir því að hann væri svona rúmur? Hvernig var þetta ákveðið?

Það sem ég er að leiða hér inn er kannski sú spurning hvort það geti verið að lagasetningin í sjálfu Evrópusambandinu eins og kannski í mörgum öðrum ríkjum sé komin í klærnar á lobbíistum sem eru ekkert að vinna fyrir almenning heldur bara fyrir stór sérhagsmunafyrirtæki, fyrir risastóra banka sem geta borgað þeim rosalega mikið fyrir það að fá þessar heimildir inn. Getur það verið að við í þinginu séum hérna að reyna að aftengja sprengju, hvort við eigum að klippa á græna vírinn eða bláa vírinn til þess að gera þetta skaðlaust? Er það það sem við erum að gera hér á þinginu?