innheimtuaðgerðir LÍN.
Virðulegi forseti. Hér heyrðum við varnarræðu fyrir hið gamla Ísland, regluna um að þriðja manns ábyrgðir séu alltaf skynsamlegar og að fólk eigi endurkröfu á hendur aðalskuldara. Þetta er gamla ræðan sem fór með okkur á hörmulegan stað og gróf undan ábyrgðarkennd í fjármálakerfinu. Það er hrikalegt að heyra að það skuli vera menntamálaráðherra landsins og ríkisstjórnin sem núna gangi á undan og láti opinberar stofnanir ganga harðar fram en bankar voga sér að gera gagnvart þriðja manns ábyrgðum. Auðvitað er búið að fara á svig við lögin vegna þess að í 1. gr. þeirra stendur að draga skuli úr vægi þriðja manns ábyrgða og í 7. gr. segir með hvaða hætti skuli tilkynna ábyrgðarmanni um yfirvofandi ábyrgð. Um leið og aðferðafræðinni er breytt, eins og hæstv. ráðherra staðfesti hér í sinni ræðu að var gert árið 2012, var gengið á svig við lög frá 2009. Hann væri maður að meiri og það væri einhver hljómur í eilífu orðagjálfri þessarar ríkisstjórnar um hag skuldugs fólks ef hann gæfi hér yfirlýsingu um að hann vildi virða lögin (Forseti hringir.) frá 2009 og koma einhverju viti fyrir stjórn og forustumenn Lánasjóðs íslenska námsmanna.