vextir og verðtrygging o.fl.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hæstv. ráðherra um það að við finnum eflaust góða lendingu á þessu máli og búum vel um það í þinginu enda nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd vel treystandi til að fara þannig með málið.
Hitt er auðvitað vanbúið mál, hæstv. ráðherra, þegar fulltrúar ráðuneytisins koma fyrir þingnefnd meðan málið er enn til 1. umr. og ræða um breytingar á mikilvægum efnisatriðum í frumvarpi sem er nýbúið að mæla fyrir og er enn við 1. umr. Ég man satt að segja ekki til að það hafi gerst. Það eru mistök að fulltrúar ráðuneytisins hafi verið kallaðir fyrir nefndina yfir höfuð meðan 1. umr. var ekki lokið. Því veldur væntanlega fákunnátta. Málið á ekki að koma til umfjöllunar í nefndinni fyrr en 1. umr. er lokið en að fulltrúar ráðuneytisins kynni breytingar á frumvarpinu áður en 1. umr. er lokið held ég að sé einsdæmi. Við gerum auðvitað ráð fyrir að stjórnarmeirihlutinn sé búinn að rýna stjórnarfrumvörp um mikilvæg mál eins og þetta og umfjöllun hafi orðið í stjórnarflokkunum. Ég geri ráð fyrir því að stjórnarfrumvarpið hafi verið lagt fram í ríkisstjórn og ég geri líka ráð fyrir því að það hafi verið lagt fram í þingflokkum stjórnarflokkanna til umfjöllunar. Sú meðferð á auðvitað að tryggja að hér komi vel rýnd og vel undirbúin frumvörp til 1. umr. og að þegar við ræðum þau hér í 1. umr. séum við að ræða um endanlega tillögu stjórnarmeirihlutans en ekki að ráðuneytið sjálft komi inn með breytingartillögur þegar blekið er varla þornað á þingskjalinu. Þetta verður að vera eitthvað fastar mótað.