innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og frumvarpið, ég held að það sé til bóta. Hins vegar tel ég það ekki vera mjög veigamikið vegna þess að upphæðin er takmörkuð í dag við 23 þús. evrur, en þegar búið er að breyta lögunum þá er hún 100 þús. evrur á hverja kennitölu. Þetta er kannski spurning fyrir þrjú slitabú um 300 þús. evrur, hugsanlega koma einhver fleiri til. Þetta er í rauninni algerir smámunir, baunir í þeirri miklu veltu sem þessi fyrirtæki hafa. Auk þess hefur sá misskilningur komið fram að þau borgi iðgjaldið. Það eru bankarnir sem geyma innstæðurnar sem borga iðgjaldið og þurfa þá ekki að borga það eftir þetta.
Það sem ég vildi spyrja um er um heimilin. Nú sagði hæstv. ráðherra að það væru 1.163 milljarðar af innstæðum tryggðir í innstæðutryggingarsjóði. Þar af eru heimilin einungis með helming og það er spurning hvort einhverjir aðrir en heimilin eigi að vera tryggðir, þ.e. hvort aðilar, fyrirtæki og aðrir, eigi að njóta sömu tryggingar og einstaklingar með sínar innstæður. Mér finnst þurfa að velta því upp.
Svo er náttúrlega allt heila innstæðutryggingakerfið að mínu mati pótemkintjöld, þ.e. til að sýnast. Það er engin trygging á bak við innstæðutryggingarnar vegna þess að ef eitthvað kemur upp á í svona litlu landi eins og á Íslandi og í flestum öðrum löndum Evrópusambandsins þá væri ekkert í þessum sjóðum. 0,8% er engan veginn nægilegt til að dekka það tjón sem getur orðið þrátt fyrir að menn miði við það að innstæður hafi forgang eins og er í neyðarlögunum.