144. löggjafarþing — 78. fundur,  5. mars 2015.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

30. mál
[13:52]
Horfa

Haraldur Einarsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Frosta Sigurjónssyni fyrir skýrt og greinargott svar. Ég vil taka undir með honum að það segir sig alveg sjálft að lítil fyrirtæki vaxa hraðast og ef lífeyrissjóðir vilja fá að auka möguleika sína í þeirri fjárfestingu hlýtur það að vera betra fyrir okkur öll sem eigendur lífeyrissjóðanna. Ég fagna þessu og hef ekki frekari spurningar um þetta mál til þingmannsins.