144. löggjafarþing — 79. fundur,  16. mars 2015.

staða þingsályktana.

[15:37]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegur forseti. Það er átakanlegt að verða vitni að því að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru að reyna að koma sér fram hjá þingræðisreglunni með einhvers konar orðhengilshætti, með því að feykja upp lagalegu moldviðri. Ef hæstv. ráðherra væri á móti staðgöngumæðrun hefði hann gert þinginu grein fyrir því. Ég bið hæstv. ráðherra að vera skýrari. Auðvitað hefði hann þurft að koma inn í þingið með afstöðu sína. Að sjálfsögðu er hann bundinn af ályktun Alþingis.

Förum yfir þær ályktanir sem við höfum samþykkt, t.d. ályktun um að viðurkenna sjálfstæði Palestínu og fela ríkisstjórninni að koma þeim skilaboðum áleiðis til Palestínu. Getur núverandi ríkisstjórn sagt: Nei, við höfum í ljósi nýjustu atburða, sem kannski eru einhverjir einhvern tímann, ákveðið að viðurkenna ekki sjálfstæði Palestínu og senda bréf þess efnis út í heim?

Hæstv. forseti. Auðvitað ekki. Þetta er alveg kristaltært, algjörlega skýrt. (Forseti hringir.) Ráðherrum í ríkisstjórn Íslands ber að fara eftir þingsályktunum sem hér eru samþykktar. Punktur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)