staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Þessa dagana er virðing þingsins í húfi. Það er forseta Alþingis að vera í fararbroddi þeirra sem vilja efla virðingu þingsins og varðveita stöðu þingsins. Ég hef séð og lesið ummæli höfð eftir ráðherrum í ríkisstjórn undanfarna daga, eftir hæstv. forsætisráðherra og að ég tel líka hæstv. fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, sem eru þannig að ég vil fara þess formlega á leit við hæstv. forseta að hann geri athugasemdir. Þar er því haldið fram að niðurstaða í atkvæðagreiðslu um að sækja um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 hafi verið þvinguð og því þurfi ekki að taka þá niðurstöðu alvarlega. Við ræddum þetta hérna aðeins fyrir ári vegna þess að þessi söguskýring rataði inn í greinargerð með stjórnartillögu og var tekin út vegna þess að hún er náttúrlega svívirðileg, þessi söguskoðun. (Forseti hringir.) Okkur ber, og einkum og sér í lagi forseta Alþingis, að halda því algjörlega til haga gagnvart borgurum þessa lands að niðurstöður sem eru fengnar í atkvæðagreiðslum í þessum sal ber að virða. Þær ber alltaf að virða. Ef við ætlum ekki að virða þær og gefa einhvern veginn í skyn að þær séu þvingaðar eða fengnar fram með einhverjum öðrum hætti erum við að grafa undan lögum, þingsályktunum og þingræði í þessu landi.