144. löggjafarþing — 79. fundur,  16. mars 2015.

staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.

[16:00]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegi forseti. Um tíma leit út fyrir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar yrði í versta falli kjánahrollur íslenskrar stjórnmálasögu, en sú staða sem núna blasir við er mun alvarlegri. Það er mikið áhyggjuefni og alvarleg staða þegar heil ríkisstjórn verður uppvís að því að skilja ekki stjórnskipun landsins, að átta sig ekki á henni, að skilja ekki hvers vegna slík meiri háttar ákvörðun þyrfti að koma hingað inn í þingið. Það er auðvitað umhugsunarefni. En annað umhugsunarefni sem blasir við manni eftir frammistöðu ráðherra ríkisstjórnarinnar áðan er sá afgerandi skortur á forustu sem leiðtogar stjórnarflokkanna sýna hér aftur og aftur. Þeir fá hvert tækifærið eftir annað til að sýna forustuhæfileika hér í þinginu en brenna af (Forseti hringir.) í hvert einasta skipti. Það er átakanlegt að verða vitni að því, sorglegt fyrir þjóðina.