144. löggjafarþing — 79. fundur,  16. mars 2015.

staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.

[16:11]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Það fór nú sérstaklega vel á því að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og leiðtogi stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili færi hér með statistik um ræðuhöld í stjórnarandstöðu.

Ég verð að segja að mér er nokkuð brugðið að heyra hæstv. forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra nánast segja við okkur á Alþingi að þeir megi gera hvað sem er, allt, svo lengi sem þeir séu ekki stoppaðir með vantrausti. Hvert erum við komin ef framkvæmdarvaldið telur sig hafa fullkomið sjálfdæmi um að túlka hvenær og þá hvort eða í hvaða mæli taka eigi að taka mark á ákvörðunum Alþingis? Sjá menn hvers konar geðþóttastjórnsýsla yrði úr því? Herra forseti. Það þarf ekki að ræða það að menn eru hér komnir út á stórkostlegar villigötur.

Nýjum þingmönnum gefst kostur á námskeiði, að setjast á námskeið þegar þeir koma hér inn til að læra undirstöðuatriðin í sambandi við þingstörf. Gleymdist að taka núverandi hæstv. ríkisstjórn á námskeið þar sem farið væri yfir (Forseti hringir.) þá staðreynd að hér situr þingbundin ríkisstjórn, það er þingræðisregla og þingræðisvenja, sem er ein sterkasta stjórnskipunarhefðin í landinu? Fór það algjörlega fram hjá þeim í byrjun?