staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Sem viðbrögð við umræðunni um meirihlutaræði og að ríkisstjórnin hafi meiri hluta þá vil ég minna okkur þingmenn á það að 63 þingmenn sitja hér kjörnir í almennum kosningum. Af þeim 63 þingmönnum eru vissulega 25 þingmenn stjórnarandstöðu sem gætu verið líklegir til að trufla og þvælast fyrir málum ríkisstjórnarinnar en hér sitja einnig 29 þingmenn stjórnarflokkanna sem ekki eru ráðherrar. Þegar við ræðum um þingræðið og þegar ég hugsa um að verja þingræðið samkvæmt stjórnarskrá Íslands er ég ekki einungis að hugsa um það fyrir hönd 25 stjórnarandstöðuþingmanna heldur 63 lýðræðislega kjörinna þingmanna. Það er þingið sem sækir umboð sitt til þjóðarinnar. Ríkisstjórnin sækir umboð sitt til þingsins.