staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég mundi ekki kalla þetta uppistand, þetta er nú talsvert harmrænna en svo. Þetta snýst um að við hér, 63 þingmenn, erum kosin á þing fyrir sex flokka úr sex kjördæmum en við erum líka öll fulltrúar þjóðarinnar. Tilgangur okkar er auðvitað að breyta málum til batnaðar ef hægt er, hafa áhrif á umræðuna, draga fram í ljósið ólík sjónarmið, vonandi til þess að geta færst nær betri niðurstöðu fyrir þjóðina, fyrir almenning í landinu. Það er hlutverk okkar hér og það er ástæða þess að við gerum athugasemdir.
Í þeirri sömu lögfræðilegu samantekt sem hæstv. ráðherra vitnar í stendur að gera verður ráð fyrir því, ef vikið er frá samþykktri þingsályktun, að Alþingi verði upplýst um slíkar breytingar og um leið leitað afstöðu þingsins eða meiri hluta þess til breytinga á málsmeðferðinni. Þá þýðir ekki bara að koma og segja: Við teljum okkur hafa meiri hluta fyrir því, heldur þarf málið að fara í umræðu. (Forseti hringir.) Til þess erum við hér. Annars getum við bara pakkað saman.