144. löggjafarþing — 79. fundur,  16. mars 2015.

staða þingsins og viðhorf ríkisstjórnarinnar.

[16:34]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Af því hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur í tvígang vitnað til lögfræðilegrar samantektar skrifstofu Alþingis um gildi þingsályktana og valið þar tiltekna texta til lestrar þá ætla ég að leyfa mér að grípa niður í þeirri greinargerð á öðrum stað, en þar segir, með leyfi forseta:

„Með fyrirmælum af þessum toga hefur Alþingi áréttað þingræðisvenjuna og um leið valdastöðu sína gagnvart framkvæmdarvaldinu. Þegar þetta er haft í huga verður ekki önnur ályktun dregin en að á ríkisstjórninni hvíli sú frumkvæðisskylda að upplýsa Alþingi ef hún hyggst ekki fylgja eftir þingsályktunum sem til hennar hefur verið beint. Verði litið á þingsályktanir sem stjórnskipunarheimild eða heimild sem íslensk stjórnskipun byggist á, samanber umfjöllun Ólafs Jóhannessonar, sýnist jafnframt rétt að gera ráð fyrir því að nýr þingmeirihluti hverju sinni lýsi stefnu sinni með nýrri þingsályktun.“

Hvers vegna las ekki hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra upp þennan texta (BirgJ: Nákvæmlega.) sem kemst í grundvallaratriðum að annarri niðurstöðu en hann hefur reynt að færa fram rök fyrir að framkvæmdarvaldinu sé í sjálfsvald sett að (Forseti hringir.) túlka hvenær það sé bundið af ályktunum Alþingis og hvenær ekki? Það er ekki niðurstaða þessa lögfræðitexta, (Fjmrh: Þú átt að lesa áfram.) hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. (Fjmrh: Þú átt að lesa áfram.)(Forseti hringir.) Já, ég var að lesa áfram. (Gripið fram í.)