144. löggjafarþing — 79. fundur,  16. mars 2015.

staða Alþingis, yfirlýsing forseta og umræða um hana, skv. 61. gr. þingskapa.

[17:11]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Frú forseti. Í lögfræðilegri samantekt skrifstofu Alþingis um gildi þingsályktana frá því í upphafi þessa kjörtímabils segir að ályktanir Alþingis séu bindandi fyrir ríkisstjórnina, ekki lögfræðilega bindandi tek ég fram, en bindandi. Það grundvallast á þingræðisvenjunni. Þannig hefur það verið. Ef menn ætla að breyta út af því í dag í þessum tilgangi eru þeir að brjóta þingræðisvenju og skapa nýtt fordæmi.

Vert er að undirstrika, og það er eitthvað sem hefur komið fram í umræðunni, að allar ályktanir sem Alþingi hefur samþykkt og hafa ekki formlega verið afturkallaðar með nýrri þingsályktun eru enn þá í gildi. Þetta hefur forseti Alþingis staðfest og kemur fram í lögfræðilegu samantektinni frá skrifstofu Alþingis. Jafnframt segir í þeirri samantekt að ef ríkisstjórn eða ráðherra hyggist ekki fylgja eftir ályktun þingsins beri þeim að eiga frumkvæði að því að upplýsa þingið um það og ef breyta eigi málsmeðferðinni skuli leita afstöðu meiri hluta þings með nýrri þingsályktun. Tökum þetta saman. Að vanrækja það að uppfylla þingsályktun krefst skýrslu, byrjar á skýrslunni, vanrækslan kemur svo, en breytt málsmeðferð krefst nýrrar þingsályktunartillögu sem þarf að samþykkja. Þetta er alveg kýrskýr niðurstaða lögfræðilegrar samantektar skrifstofu Alþingis.

Nú er spurningin: Er hér verið að breyta málsmeðferð? Nú virðist vera svo að forseti þingsins líti ekki svo á að verið sé að slíta aðildarviðræðunum og þar af leiðandi er ekki um að ræða breytta málsmeðferð. Það virðist líka líta út fyrir að formaður utanríkismálanefndar sé sama sinnis, hann hefur gefið það út, en formenn flokkanna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, eru báðir á því að þetta jafngildi því að verið sé að slíta aðildarviðræðunum. Það er staðan sem við höfum í dag. Þetta verður að skýra. Það verður að vera kýrskýrt hvort fylgt sé þeirri þingræðisvenju að ef málsmeðferð er breytt, breytt út frá þingsályktun, sem nýtt þing getur að sjálfsögðu gert, verði að gera það með nýrri þingsályktun. Við verðum að fá þetta skýrt, það er ekki orðið skýrt þó að margt hafi skýrst í þessu máli.

Í þingsályktun frá Alþingi árið 2009 um aðildarumsókn að ESB segir, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar.“

Þar kemur fram alls konar verklag sem ekki virðist vera fylgt núna ef það er svo að yfirstjórn Evrópusambandsins eigi að líta svo á að verið sé að slíta viðræðum. Ef verið er að slíta þeim þá er ekki verið að fylgja eftir þingsályktuninni, þá er klárlega verið að brjóta gegn henni. Þetta þurfum við að fá kýrskýrt. Ef brotið hefur verið gegn þingsályktuninni hefur þeirri þingræðisvenju verið fórnað að ef breyta á út frá þingsályktun, breyta henni í megindráttum, ef það verður stefnubreyting, á að gera það með annarri þingsályktunartillögu. Ef svo er þá erum við komin með miklu meira ríkisstjórnarræði en á að vera. Þá hefur þingræðið minnkað og framkvæmdarvaldið fengið meira vald til sín. Þá þurfum við að endurskoða fullt af öðrum hlutum. Ef það er hægt að gera þetta svona, ef menn geta tekið svona vald til sín, þarf að endurskoða allt samstarf á þingi. Þannig að þetta verður að vera skýrt.

Köllum eftir því að málið sé skýrt frekar. Ef hæstv. forseti Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé verið að ganga gegn ályktuninni, ekki sé verið að draga aðildarviðræðurnar til baka, þá þarf það að koma skýrt frá forseta Alþingis og forsætisnefnd. Annars getur það gerst að yfirstjórn Evrópusambandsins líti svo á að það sé nákvæmlega það sem verið var að gera, þeir hafi slitið viðræðum. Hvert erum við þá komin? Þá er búið að skapa það fordæmi að ríkisstjórnin geti gert slíkt upp á sitt einsdæmi. Þá er ekki gott í efni.