staða Alþingis, yfirlýsing forseta og umræða um hana, skv. 61. gr. þingskapa.
Virðulegi forseti. Ég tel að það hafi verið jákvætt að hæstv. utanríkisráðherra skyldi taka af allan vafa um það hver vilji ríkisstjórnarinnar væri varðandi umsóknarferlið í Evrópusambandið. Í ljósi umræðunnar sem farið hefur fram hér í dag tel ég rétt að við veltum aðeins fyrir okkur hvernig stofnað var til þessa umsóknarferlis vegna þess að mér hefur þótt það vanta aðeins inn í umræðuna. Hér hefur verið látið að því liggja að Alþingi hafi bara tekið einhverja ákvörðun og að hér hafi ríkt töluverð sátt um þá ákvörðun og að sú ákvörðun bindi ekki bara þá ríkisstjórn heldur líka núverandi ríkisstjórn sem hefur allt aðra stefnu en var á þeim tíma.
Hvað gerðist í umræðunni? Ég held að það sé rétt að benda á að tiltölulega stór hluti þingmanna Vinstri grænna var mjög á móti því að farið yrði í þá vegferð. Ég man ekki betur en að einhverjir þeirra hafi bara hreinlega sagt sig úr þingflokknum á þeim tíma. Ég veit heldur ekki betur en að þáverandi forseti (Gripið fram í.) hafi að fyrirskipan hæstv. forsætisráðherra á þeim tíma stöðvað þingfund þegar einhver vafi lék á því að meiri hluti yrði fyrir þessu. Ég held að það sé allt í lagi að ræða það vegna þess að hér ræðum við um virðingu Alþingis, virðulegi forseti. Það gekk nú ýmislegt á. (Gripið fram í: Þrír framsóknarmenn sögðu já.)
Nú velta menn því fyrir sér, og ég heyri ekki annað á umræðunni en að núverandi ríkisstjórn eigi að halda áfram með umsóknina sem hvað? Sigldi í strand og hætt var við! Af hverju var henni hætt? Ekki af því að þetta gekk allt svo glimrandi vel, þetta gekk bara ekki neitt og meira að segja stærsti kaflinn, sjávarútvegsmál, var ekki einu sinni opnaður. Ég held að menn ættu að lesa bók hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra, hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar. (Gripið fram í.) Hún segir nú ýmislegt um hvernig var með landbúnaðarmál og hvernig stemningin var hjá þáverandi ríkisstjórnarflokkum.
Af hverju ræðum við þetta mál hér í dag? Jú, vegna þess að fyrrverandi ríkisstjórn gleymdi einu, sem hún talar reyndar fyrir í dag að þurfi að gera. Það var að kalla fram hinn raunverulega vilja þjóðarinnar um hvort þjóðin vilji yfir höfuð ganga í Evrópusambandið, (Gripið fram í.) ekki einhverja millileið, hvort halda eigi áfram eða eitthvað svoleiðis. Við þurfum bara að fá fram viljann, hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið eða ekki, vegna þess að umsókn að Evrópusambandinu þýðir ekkert annað (Gripið fram í.) en að ríkisstjórn og Alþingi vilji ganga í sambandið. (Gripið fram í.)
Það var aldrei farið í þá vegferð og þess vegna erum við í þessum vandræðum. Það er allt í lagi að halda því til haga að það var afar illa haldið á þessu máli í tíð síðustu ríkisstjórnar, afar illa. (Gripið fram í.) Og þegar menn koma hér og ræða um virðingu Alþingis — hvaða forseti mundi leyfa sér að stöðva þingið vegna þess að ekki er meiri hluti fyrir einhverju máli til þess að berja saman einhverja niðurstöðu? (Gripið fram í.) Hver mundi gera það? (BirgJ: Með því að sniðganga …) Ég spyr hv. þm. Guðbjart Hannesson, sem sat einu sinni í þessum stól og stýrði Alþingi, hvort hann hefði látið sé detta það í hug.
Virðulegi forseti. Stjórnarskipunin er alveg á hreinu. Utanríkisráðherra hefur forræði á utanríkismálum ríkisstjórnarinnar. (SII: Í umboði Alþingis.) Það er kýrskýrt (BirgJ: Í umboði Alþingis.) í stjórnarskrá lýðveldisins. Við skulum hafa eitt á hreinu sem ég held að menn gleymi hér algjörlega, fyrrverandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, hefði í sjálfu sér getað farið til Evrópusambandsins og sótt um aðild. Síðan hefði hann að sjálfsögðu þurft að bera niðurstöðuna undir Alþingi og svo undir þjóðina. (Gripið fram í.) Það er þannig sem það virkar. Og það er þannig sem núverandi utanríkisráðherra heldur á málinu, nákvæmlega þannig. Þið þurfið að velta því fyrir ykkur. (Gripið fram í.) Nei, það er einmitt það sem hv. fyrrverandi utanríkisráðherra gerði ekki. Hann fór aðra leið en hann hefði getað farið hina leiðina, það er það sem ég er að benda á. Ég hef verulegar áhyggjur af því hvernig þingmenn Pírata hafa algjörlega snúið á hvolf öllu sem snýr að hugtökum um lýðræði og stjórnskipun. Ég hef áhyggjur af því, virðulegi forseti. (Gripið fram í.) [Hlátur í þingsal.]
Ég hef líka áhyggjur af öðru. Ég hef áhyggjur af því að hér komi þingmenn (Gripið fram í: … Framsókn?) stjórnarandstöðunnar … (Forseti hringir.)
(Forseti (KLM): Forseti vill biðja þingmenn vinsamlegast að hafa hljóð í þingsal og leyfa þingmanninum að flytja ræðu sína.)
Virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af því að þingmenn stjórnarandstöðunnar komi í ræðustól og hóti langri og ítarlegri umræðu. Farið var í málþóf um fundarstjórn forseta áður en umræðan hófst í dag og fluttar nákvæmlega sömu ræður og fluttar voru áðan. Hvað á það að þýða, virðulegi forseti? Hér var samkomulag um hvernig við ætluðum að halda á þingsköpum. Á meðan það er ekki virt þá komum við kannski að kjarna þessarar umræðu: Ríkisstjórn og þingmeirihluti verða að hafa einhver ráð til þess að koma málum sínum í gegnum Alþingi. Og ef lagt er upp með það af hálfu stjórnarandstöðunnar að hér verði engum málum komið í gegn er það grafalvarlegt mál vegna þess að fjölmörg mál bíða okkar og verða að fara í gegn. (Gripið fram í.)
Virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af biturðinni sem fram kemur í þeim frammíköllum sem ég hef þurft að þola undir ræðu minni. Einu sinni var það nú þannig að menn reyndu að vera svolítið skemmtilegir í frammíköllum en biturðin og reiðin er nokkuð sem ég held að við ættum öll að hafa pínulitlar áhyggjur af.
Hér hefur ítrekað verið vitnað í álit sem lögfræðingur Alþingis gaf á skuldbindingargildi þingsályktunartillagna. Ég man eftir því í Icesave-málinu, þar sem því var haldið fram að okkur bæri lagaleg skylda til að samþykkja þá samninga og ýmsu röngu haldið fram, (SII: Því var aldrei haldið fram.) við erum að upplifa nákvæmlega sömu stöðu núna. Þegar menn vitna í þetta álit ættu menn að lesa þar eina setningu þar sem fram kemur að ef meiri hluti Alþingis hyggst ekki fylgja eftir þingsályktunum sýnist skýrsluhöfundi koma til greina að slíkt sé gert með skýrslu til Alþingis. Það stendur ofarlega á bls. 5 í skýrslunni. Ég bið alþingismenn að lesa þessa setningu og láta hana fylgja með þegar menn fullyrða hér að lögfræðingurinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að verið sé að brjóta einhver lög. Hæstv. utanríkisráðherra ætlar að koma hér á morgun (Gripið fram í.) og gefa Alþingi skýrslu. Þá hljótum við að líta til þessarar setningar og þess skýra vilja að hægt sé að gera þetta með skýrslu til Alþingis. (Gripið fram í.)
Ég velti líka fyrir mér: Er það þannig að þingmeirihluti sem sér fram á að umboð hans verði ekki endurnýjað, eins og í tíð síðustu ríkisstjórnar, gæti samþykkt hér 100 þingsályktunartillögur sem binda mundu hendur (Forseti hringir.) næstu ríkisstjórnar þannig að hún yrði marga mánuði að vinda ofan af því? Hér er sleginn varnagli, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) svo það verði ekki að veruleika.