144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

afgreiðsla atvinnuveganefndar á rammaáætlun.

[13:31]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun var tekin út þingsályktunartillaga, breytingartillaga um rammaáætlun. Samkvæmt tillögunni er lagt til að fjórum kostum verði bætt við þá tillögu sem hæstv. umhverfisráðherra gerði tillögu um til þingsins í haust, en ráðherra gerði tillögu í samræmi við lög um rammaáætlun sem kveða á um tiltekið ferli. En nú liggur fyrir að þetta ferli er ekki virt og með tillögunni um að setja Hagavatn í nýtingarflokk er án vafa verið að ganga á svig við lög um rammaáætlun.

Ég vil segja, virðulegi forseti, og óska eftir því að afstaða verði tekin til þess að þessi tillaga er óþingtæk vegna þess að hún byggir ekki á gildandi lögum um þetta ferli og tel þess vegna að leggja þurfi þessari tillögu. Og til að tillaga af þessu tagi fái hér úrvinnslu og afgreiðslu þarf stjórnarmeirihlutinn að leggja fram breytingartillögu á lögum um rammaáætlun og breyta ferlinu því að þetta byggir ekki á gildandi lögum.