afgreiðsla atvinnuveganefndar á rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Það virðist ætla að verða venjan á þessu þingi að við séum sífellt að ræða hvernig þingið eigi að starfa og sérstaklega hvernig samband Alþingis við ríkisstjórnina eigi að vera. Mér þykir sú þróun miður. Við eigum að vera að ræða mál efnislega og þegar við höfum tækifæri til þess. Vegna þess að við erum upptekin við að ræða formið stöndum við frammi fyrir mjög alvarlegu vandamáli.
Nú veit ég að það er mjög auðvelt fyrir ríkisstjórnina og fylgismenn hennar að kenna stjórnarandstöðunni um, en þetta er Alþingi, þetta er ekki ríkisstjórnarþing. Við hér erum öll þjóðkjörin. Við erum öll hingað komin til að tala um þessi mál og þegar sífellt er stigið á tærnar á Alþingi, svo ekki verði harðari orð notuð, veit ég ekki hvert við stefnum.
Nú var fyrirséð að þessi vika yrði undirlögð umræðu um hvernig við ætlum að starfa á Alþingi með þessa ríkisstjórn. Og núna, enn og aftur, gerist eitthvað nýtt á þá leið að við þurfum að ræða þetta enn þá meira. Hvenær linnir þessu, virðulegi forseti?