144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

afgreiðsla atvinnuveganefndar á rammaáætlun.

[13:41]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að hafa ákveðið að skoða sérstaklega stöðu þessarar breytingartillögu og deili þeirri skoðun að það gangi ekki að setja hana hér á dagskrá öðruvísi en fyrir liggi niðurstaða eða einhvers konar svar við tilteknum spurningum.

Sú fyrri er í raun og veru sú hvort tækt sé að tillaga til þingsályktunar sem felur í sér einn virkjunarkost sé síðan með breytingartillögunni einni breytt í fimm virkjunarkosti. Gengur að telja breytingartillöguna breytingartillögu eða er um að ræða nýja tillögu? Þetta varðar þingtæknilegan þátt málsins.

Hins vegar er það hvort hér sé um lögmæta málsmeðferð að ræða, þ.e. þegar fyrir liggur að Hagavatnsvirkjun hefur aldrei hlotið yfirferð, hvorki við 2. né 3. áfanga rammaáætlunar, hvort það sé í samræmi við gildandi lög. Það er hin efnislega yfirferð sem þarf að fara í (Forseti hringir.) við skoðun hæstv. forseta. Ég legg áherslu á að þessi (Forseti hringir.) greining þarf að liggja fyrir áður en þingið getur fjallað um málið.