144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

afgreiðsla atvinnuveganefndar á rammaáætlun.

[13:48]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Það er mjög gott að heyra orðalagið „í þágu góðra vinnubragða“. Það er því miður ekki hægt að segja um það mál sem við erum að tala um hér, afgreiðslu atvinnuveganefndar í hnotskurn. Það er ekki verið að nema úr gildi þingsályktun, það er verið að brjóta lög þannig að það er ekki bara virðingarleysi gagnvart ákvörðunum sem þingið hefur tekið í yfirlýsingum sínum og ályktunum heldur er hér beinlínis verið að brjóta lög. Þetta þýðir að það eru engir flokkar í gangi ef þetta er gert svona, enginn verndarflokkur, biðflokkur eða nýtingarflokkur, það er bara allt undir. Atvinnuveganefnd getur þá, ef þetta er heimilað með þessum hætti, ákveðið að virkja hvar sem er á landinu. Það er allt undir og það er bara gert með tillögu frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni.

Þannig eru hlutirnir einfaldlega ekki ákveðnir hér á landinu, (Forseti hringir.) hv. þingmaður. (Gripið fram í.) Því miður, þetta er ekki svona. Þetta er ekki í þínum höndum, þú getur ekki ákveðið þetta. Ísland er nefnilega ekki yfirráðasvæði (JónG: Nefndu grein laganna sem verið er að brjóta.) …