144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:03]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hafði ákveðnar væntingar til þessa dagskrárliðar, að við ætluðum að ræða málefnalega um skýrslu hæstv. utanríkisráðherra, en svo kemur hér fram slíkur hroki og óþolandi afstaða hæstv. ráðherra gagnvart þinginu að ég get ekki látið hjá líða að nefna það við forseta. Hæstv. ráðherra setur ofan í við hv. þm. Helga Hrafn Gunnarsson fyrir að hafa tekið þátt í þingstörfum með umræðu og talar um að hann hafi verið að koma í veg fyrir framgang málsins með því að tala. Er hæstv. ráðherra að leggja til takmarkanir á málfrelsi þingmanna til viðbótar við allt sem hér hefur verið sagt? Það styrkir vandræðagang þessarar ríkisstjórnar með hverjum deginum sem líður að afstaða ráðherranna er algerlega óþolandi gagnvart þinginu. (Forseti hringir.) Mér er skapi næst að biðja hæstv. ráðherra að vera einhvers staðar annars staðar svo við þingmenn getum rætt hér saman um stöðu Alþingis.