Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Það er grafalvarlegt mál að hæstv. utanríkisráðherra útskýrir það af hverju hann er ekki kominn hingað með þingsályktunartillögu um að slíta viðræðunum með þeim hætti að hann er í raun að segja að hann treysti ekki þinginu til að taka á því máli. Hann sakaði þingið um að stoppa mál og þar fram eftir götunum. Eins og hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson hefur bent á var þessi mjög svo umdeilda tillaga um að slíta viðræðunum, mjög svo umdeild bæði innan þings og meðal þjóðarinnar, rædd í fimm daga. Ég áskil mér rétt til að flytja líka ræður ef slík tillaga er aftur lögð fram fyrir þingið og mun gera það. Fimm dagar í þessu máli eru ekki málþóf á nokkurn einasta hátt.
Svo má líka benda á að það var verið að ræða aðra hluti líka eins og skýrslu Hagfræðistofnunar. Stjórnarmeirihlutinn talar stundum um að hann vilji fá efnislega umræðu um Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Hvernig var tekið á þeirri umræðu? Hún fór fram í einn dag og (Forseti hringir.) eftir það kom hæstv. utanríkisráðherra með tillögu um að slíta viðræðum við Evrópusambandið. Það var öll virðingin fyrir þeirri umræðu þó að mikið hafi verið um hana beðið.