144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:11]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að velta því upp hvernig við eigum að haga störfum okkar ef þetta á að vera svona, ef þetta á að vera kríterían fyrir því að ákvarðanir séu teknar af ráðherra, vitanlega í óþökk 53.555 manna sem hafa skrifað undir lista þeirra sem vilja fá þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Það er að sjálfsögðu krafa, enda var því lofað, teljandi að sínu viti ómögulegt að fá þetta mál í gegnum þingið. Þá velti ég fyrir mér hvernig við þingmenn eigum í framtíðinni að nálgast mál sem eru umdeild í samfélaginu sem fá mörg þúsund manns dag eftir dag út á Austurvöll til að mótmæla. Eigum við að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvað við megum tala lengi áður en hann ákveður að við séum ekki lengur hæft stjórnvald til að taka ákvarðanir í þessu landi?

Hvernig eigum við að hafa þetta? Mér þætti gaman að fá svör við því.