144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:51]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Árni Páll Árnason fór hér vel og vandlega yfir ýmsar fræðigreinar er lúta að stöðu þingsályktunartillagna. Við getum verið ósammála og deilt um þær niðurstöður sem hv. þingmaður kemst að eftir lestur þessara greina, en miðað við áhuga hans og upplegg í ræðunni saknaði ég þess að heyra ekki frá honum ítarlega umfjöllun um það hvaða stöðu hann lítur þingsályktunartillöguna margnefndu hér í þingsal frá því í júlí 2009. Hann lýsti í svari við andsvar rétt áður sýn sinni á það hvernig hann vill taka þetta mál áfram, hvernig hann sér fyrir sér að taka megi málið upp aftur við Evrópusambandið. Það er ánægjulegt út af fyrir sig að heyra að hann telur pólitískt sniðugt að bera það undir þjóðina áður en lengra er haldið.

Ég vil spyrja hv. þm. Árna Pál Árnason, formann um það bil stærsta stjórnmálaflokks í stjórnarandstöðu þessi missirin, (BÁ: Ekki lengur.) hvernig hann líti á, burt séð frá pólitískri rétthugsun sem hann lýsti rétt áðan af sinni hálfu, þingsályktunina frá 2009. Telur hann tilefni til að hefja aftur viðræður við Evrópusambandið árið 2017 komist hann í aðstöðu til þess? Það væri kannski eðlilegt ef við litum til ársins 2030. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður eðlilegt og (Forseti hringir.) lögfræðilegt að hefja aftur viðræður við Evrópusambandið byggt á þeirri þingsályktun?