144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:32]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra endurtekur spurningu sína og ég endurtek svar mitt. Síðustu ríkisstjórn var heimilt að leggja það til við þingið að slíta aðildarviðræðum. (Forsrh: Ég var ekki að tala um það.) Það var það sem var talað um og að sami skapi er núverandi ríkisstjórn algjörlega heimilt að leggja það til líka.