144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:34]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki viss um að ég taki þátt í ríkisstjórn sem vilji sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu. En vilji næsta ríkisstjórn 2017 sækjast eftir aðild mundi ég telja eðlilegt að hún leitaði leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum.