144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:51]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég deili gleði hv. þingmanns hvað þetta varðar, mér finnst Evrópumálin hafa komist rækilega á dagskrá og þökk sé flumbrugangi hæstv. utanríkisráðherra í þágu málstaðarins.

Ég gleðst líka yfir því að vera hér á sólríkum degi, loksins eftir lægðirnar undanfarið, að ræða við hv. þingmann og rýna í hvað hæstv. utanríkisráðherra er mögulega að hugsa. Ég er honum sammála um það, hv. þingmanni, að líklega hafa orðaskipti hæstv. utanríkisráðherra við fjölmiðlafulltrúa stækkunarstjóra — þar sem fyrstu viðbrögð utanríkisráðherra voru að segja að fjölmiðlafulltrúinn væri úti á túni — gert hæstv. utanríkisráðherra ljóst að þetta bréf nægði ekki til þess að draga til baka umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Það í raun og veru stendur og ég hugsa að frá okkar sjónarhóli sé þá fjölmiðlafulltrúi stækkunarstjóra líka starfsmaður vikunnar, að hann hafi tekið að sér að segja utanríkisráðherra Íslands frá því hvers eðlis það bréf sem hann var að afhenda í Slóvakíu er.

Svo vona ég, og þess vegna er mjög mikilvægt að ekki sé búið að slíta þessum viðræðum, að einhvern tíma verði hægt að klára þessar viðræður, koma heim með samning til Íslendinga þar sem við getum tekið afstöðu til þess í lýðræðislegu ferli og vonandi vönduðu ferli, upplýstu ferli, hvort við viljum, Íslendingar, gerast aðilar að ESB eða ekki. Og ég vil halda því til haga að mér finnst það einn stærsti áfellisdómurinn yfir núverandi ríkisstjórn að hún geti ekki, (Forseti hringir.) henni sé algjörlega ómögulegt að fara í þetta lýðræðislega, opna ferli. (Forseti hringir.) Það er magnað.