Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér Evrópumál, þ.e. munnlega skýrslu utanríkisráðherra, bréf sem hæstv. utanríkisráðherra sendi til ESB um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið, bréf sem er svo loðið og torskilið að svo virðist sem engir tveir sem lesa það geti komist að sömu niðurstöðu um hvað standi í því.
Hæstv. utanríkisráðherra sagði hér fyrr í dag að umsóknarferlinu sé nú lokið og Ísland teljist ekki lengur til umsóknarríkja. Í gær kom það hins vegar fram, í yfirlýsingu hæstv. forseta Alþingis, að ályktun Alþingis frá árinu 2009 hafi ekki verið numin úr gildi með bréfinu. Ég verð að viðurkenna að ég verð bara pínulítið ringluð. Þessi umræða hér í dag hefur að sumu leyti verið gagnleg en að öðru leyti er ég þó ekki enn alveg viss um hvaða vægi þetta bréf, sem við erum búin að eyða deginum í að ræða um, hefur eða hvaða tilgangi það í raun þjónar.
Eitt af því sem mögulega má segja að hafi verið gagnlegt við umræðurnar hér í dag en er að sama skapi mjög umhugsunarvert, svo að ekki sé meira sagt, er að hæstv. ráðherra segir málið byggt á traustum stjórnskipulegum grunni og að umræður á Alþingi í gær hafi leitt það í ljós. Þessu verð ég að lýsa mig algerlega ósammála. Þvert á móti finnst mér umræðan, og þá ekki síst ræða hæstv. utanríkisráðherra, hafa verið mjög undarleg túlkun á 1. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“
Af máli hæstv. ráðherra fannst mér eins og mætti þó skilja að ráðherrar mættu ráða hvað þeir geri á grundvelli ætlaðs samþykkis Alþingis. Þannig hef ég aldrei skilið að þingræðið virki. (Gripið fram í.) Ég sagði: Svona skildi ég það sem þú sagðir. Þingræðið virkar á þann hátt (Gripið fram í.) — þú getur komið hér upp í andsvar og útskýrt hvað þú áttir við. Þingræðið virkar á þann hátt að þingið tekur ákvarðanir um það hvað ráðherrar eigi að gera eða ráðherrar leita stuðnings þingsins til að koma stefnu sinni í framkvæmd. Þá verð ég einnig að segja að mér fannst skilningur og túlkun hæstv. utanríkisráðherra á þingsköpum Alþingis ekki síður merkileg en hann sagði að það væri matsatriði hvenær leita þurfi samráðs við hv. utanríkismálanefnd. Í þingsköpum Alþingis segir hins vegar skýrum orðum í 24. gr., með leyfi forseta:
„Utanríkismálanefnd skal vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum.“
Ef aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu telst ekki meiri háttar utanríkismál veit ég ekki alveg hvaða mál það eru sem flokkist meiri háttar mál.
Aftur að bréfinu. Ef marka má ummæli fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna um bréf hæstv. utanríkisráðherra hér í þinginu sem og í fjölmiðlum undanfarna daga var einn megintilgangur þess að eyða óvissu og koma á hreint stöðunni í samskiptum Íslands og Evrópusambandsins. Óhætt er að segja að það markmið hafi mistekist hrapallega. Augljósustu sönnun þess er ekki að finna í skrifum andstæðinga þessarar ríkisstjórnar heldur þvert á móti í málflutningi manna sem fylgja stjórninni að málum og sem hafa sérstaklega látið sig varða slit á viðræðum við Evrópusambandið. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, meðlimur í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins á liðnum áratugum og einn af frumkvöðlunum að stofnun Heimssýnar, samtaka andstæðinga Evrópusambandsaðildar Íslands — maður sem ég átti í raun ekki von á að ég mundi vitna í héðan úr ræðustóli Alþingis, en gott og vel — hefur skrifað nokkrar færslur um bréf hæstv. utanríkisráðherra á vefsíðu sína á liðnum dögum. Styrmir Gunnarsson verður varla sakaður um að vera stjórnarandstæðingur sem geri sér að leik að misskilja hlutina. Á föstudaginn var ritaði Styrmir færsluna: „Illa haldið á stóru máli“. Þar segir, með leyfi forseta:
„Að afturkalla aðildarumsókn Íslands að ESB er tiltölulega einföld aðgerð. Í ljósi þess að aðildarumsóknin var samþykkt á Alþingi sumarið 2009 var og er hin lýðræðislega aðferð að sjálfsögðu sú, að þingið ákveði að draga umsóknina til baka. Það var líka niðurstaða ríkisstjórnarinnar fyrir ári, þegar utanríkisráðherra lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis á þingi. Og þar til á síðustu dögum eða vikum voru það augljóslega áform ríkisstjórnarinnar að leggja slíka tillögu fyrir þingið á ný.“
Síðar í greininni bendir Styrmir á að leið ríkisstjórnarinnar í málinu sé ekki bara pólitískt veik heldur líka með ólíkindum óskýr, að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi í viðtölum ekki þorað að kveða upp úr með það berum orðum að aðildarumsóknin hafi verið borin til baka. Hann bætir því við að vafalítið muni einhverjir andstæðingar aðildar gera sér vonir um að málinu sé lokið en því sé það augljóslega ekki.
Hæstv. forseti. Þetta eru ekki orð gallharðs stjórnarandstæðings sem gerir sér að leik að snúa út úr eða misskilja orð forustumanna ríkisstjórnarinnar. Nei, þetta eru orð einhvers kunnasta andstæðings Evrópusambandsaðildar Íslands og áhrifamikils forustumanns í öðrum ríkisstjórnarflokknum, og hann endar mál sitt á að segja, með leyfi forseta:
„Það er erfitt að finna nokkurt fordæmi fyrir því að svo illa hafi verið haldið á svo stóru máli.“
Áhyggjur Styrmis eru að mínu mati augljósar. Ég giska á að hann hljóti að velta því fyrir sér úr því að sitjandi ríkisstjórn telur sig geta afturkallað þingsályktun Alþingis um aðildarviðræður með einföldu bréfi hvað sé því þá til fyrirstöðu að næsta ríkisstjórn, sem kynni að vera á annarri skoðun, geri bara ekki nákvæmlega það sama og hætti við að hætta við og þá líklega sú næsta þar á eftir hætti við að hætta við að hætta við. Það hljóta allir að sjá hvaða vitleysu við erum þá komin út í.
Þess vegna er að mínu mati það eina sem hægt er að gera í stöðunni að koma með málið hingað inn í þingsal, flytja þingsályktunartillögu og fá úr því skorið hver vilji Alþingis er í þessu máli, og síðan fari hæstv. ráðherra á fund Evrópusambandsins og geri því grein fyrir því hver niðurstaða Alþingis hafi orðið í málinu.