144. löggjafarþing — 80. fundur, 17. mars 2015.
Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar og spurninguna. Ég held að hvaða ríkisstjórn sem er geti alltaf komið með þá tillögu að slíta viðræðum á hvaða stigi málsins sem er, en auðvitað þarf að fara með slíka ákvörðun og sækja heimildina til þess að gera það til þingsins. Það liggur alveg í augum uppi að til þess að ríkisstjórn geti farið í þannig ákvörðun þarf alltaf að hafa samþykki þingsins fyrir því.