Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Það hefur komið fram í máli þó nokkurra hv. þingmanna í dag að þeir eru villtir í stefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs þegar kemur að Evrópusambandinu. Það er hins vegar svo að stefna hreyfingar okkar er að klára aðildarviðræðurnar og greiða svo atkvæði um niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo ég svari fyrir mig persónulega er Evrópusambandið í mínum huga fyrst og fremst fyrir fram mótaður pakki þótt við getum mögulega fengið einhverjar undanþágur með samningum. Ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki stóra málið heldur skipti heildarpakkinn þar meginmáli. Það er á grundvelli hans sem ég hef mótað þá afstöðu mína að ég vil ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hins vegar finnst mér mjög mikilvægt núna þegar við erum að taka næstu skref á árinu 2015 að málið fái eðlilega og góða þinglega meðferð, en ekki að hæstv. ríkisstjórn taki ákvarðanir án þess að bera þær undir þingið.