144. löggjafarþing — 80. fundur, 17. mars 2015.
Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að verja lygar einhverra manna úti í bæ. Þetta myndband sem hv. þingmaður vísar í, sem er víst tekið upp uppi í Hörpu, er ekki það sama og ég hef séð, ég bara get ekki svarað þessu þar sem ég hef ekki séð þetta. Ég segi enn og aftur: Ég hef aldrei heyrt hæstv. forsætisráðherra láta þessi orð falla, þannig að ég tek ekki undir þetta að neinu leyti og svara þessu ekki frekar fyrr en ég er búin að sjá það meinta myndband sem hv. þingmaður vitnar til.