Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég treysti fólkinu í landinu. Ég treysti fólkinu í landinu til þess að kynna sér um hvað Evrópusambandið er og hvaða afleiðingar það hefði fyrir Ísland að ganga þar inn. Þegar þar að kemur sæi ég fyrir mér að fólk gæti kosið um það hvort það muni vilja ganga í Evrópusambandið.
Ég fór ágætlega yfir þetta í ræðu minni. Það er ekki forsenda fyrir að halda aðildarviðræðum áfram ef þingmeirihluti og ríkisstjórn eru á móti inngöngu (Gripið fram í.) og þjóðin hefur ekki verið spurð hvort hún vilji ganga inn í Evrópusambandið. Ef það er ekki á hreinu hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið og ef þingmeirihluti er ekki fyrir inngöngu í Evrópusambandið (Gripið fram í.) þá stendur ekki til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég hvet hv. þingmann til að lesa ræðuna mína á vef Alþingis að þessum þingfundi loknum og fara betur yfir þetta. (KaJúl: Ég var að spyrja um orð formanns flokksins.)