144. löggjafarþing — 80. fundur,  17. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[22:11]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Honum, eins og mér hér áðan, er ansi heitt í hamsi og eðlilega, skiljanlega, það er mikið til að reiðast yfir. En ef við ætlum að líta aðeins fram á veginn, eins og oft er sagt af hv. sjálfstæðismönnum, líta til framtíðar, þá velti ég fyrir mér í fyrsta lagi á hvaða leið við séum og í öðru lagi á hvaða leið við ættum að vera.

Nú liggur fyrir að hæstv. utanríkisráðherra þorir ekki í þingið með málið, virðist ekki treysta sér til að fá meiri hluta hér í þinginu eftir síðari umræðu og almennilega umfjöllun. Um það bil 8.000 manns fóru niður á Austurvöll síðasta sunnudag til að heimta þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál. Fyrir ári, þegar þetta kom hingað fram í formi þingsályktunartillögu, skrifuðu 22% kjörbærra manna undir undirskriftalista þess efnis að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég hef aldrei heyrt málskotsrétt þjóðarinnar nefndan þar sem talað er um aðra eins prósentu. Menn segja 10%, í mesta lagi 15%, sumir tala um 5% og jafnvel 2%. En 22% — þegar næstum því fjórðungur þjóðarinnar vill fá þjóðaratkvæðagreiðslu um málið þá er ansi ljóst að tilefni er til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nú stöndum við frammi fyrir því að ríkisstjórnin og Alþingi eru ekki aðskilin, þ.e. að hæstv. ráðherrar eru líka þingmenn. Þeir hafa bæði löggjafarvald og framkvæmdarvald. Í raun og veru er þetta þannig að toppþingmennirnir fá framkvæmdarvaldið í kaupbæti. Ég velti fyrir mér: Hefur hv. þingmaður einhverjar hugmyndir um það hvernig við getum bætt kerfið þannig að við komumst upp úr því feni sem við erum í nú?