Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Mér finnst í rauninni alveg ótrúlegt hvað okkur Íslendingum tekst að flækja öll mál. Nú eru 28 ríki í Evrópusambandinu. Þessum þjóðum hefur tekist að sækja um aðild, fá í hendurnar samning, taka afstöðu til samningsins, til dæmis með þjóðaratkvæðagreiðslu, en fyrir okkur er það of flókið ferli, við höndlum það bara ekki.
Mig langar aðeins til að fara yfir feril málsins frá því að þessi stjórnvöld tóku við stjórnartaumunum. Á haustmánuðum 2013 leysti hæstv. utanríkisráðherra samninganefndina frá störfum. Það voru vonbrigði en þó lá alltaf fyrir að þessi ríkisstjórn ætlaði ekki að standa í samningaviðræðum við ESB þannig að að einhverju leyti var það skiljanlegt. En það voru mjög skýr skilaboð til Brussel um að Ísland væri ekki lengur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Viðbrögðin frá ESB voru þau að skilningur væri á þessu og ef Ísland vildi taka þráðinn upp síðar væri það velkomið.
Næsti leikur hæstv. utanríkisráðherra var að koma með þingsályktunartillögu um að slíta viðræðum inn í þingið, sem olli miklu fjaðrafoki og dó síðan í utanríkismálanefnd. Það er mjög mikilvægt að hér komi fram að það var ekki málþóf sem drap þá umræðu, það var einfaldlega þannig að stjórnvöld treystu sér ekki til að fara með það mál í gegnum þingið. Ég vænti þess að þeir sem sátu hér á síðasta kjörtímabili viti alveg hvað málþóf er og þetta var ekki það. Það er þá enn einn misskilningurinn.
Næsti þáttur í þessu leikriti var þegar nýkjörinn forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, sagði í ræðu að aðildarríkjum yrði ekki fjölgað á næstu fimm árum. Það var í júlí 2014. Þá sagði hæstv. utanríkisráðherra í framhaldinu við fréttastofu, við Fréttablaðið, að mig minnir, að hann túlkaði yfirlýsingu nýkjörins forseta framkvæmdastjórnar ESB um fimm ára hlé á frekari stækkun sambandsins sem svo að þar með væri aðildarferli Íslands að sambandinu formlega lokið. Í viðtali við Vísi 18. júlí 2014 sagði hæstv. utanríkisráðherra: Í sjálfu sér er þetta allt búið.
Svo kom í ljós að ESB leit ekki þannig á málin. Talsmaður sambandsins, Peter Stano, sagði af þessu tilefni:
„Íslensk stjórnvöld ákváðu í maí 2013 að gera hlé á aðildarviðræðunum. Óski íslensk stjórnvöld á einhverjum tímapunkti eftir því að hefja viðræðurnar á nýjan leik er framkvæmdastjórnin tilbúin til áframhaldandi viðræðna.“
Sem sagt, aðildarumsóknin var áfram á ís. Þá hélt maður að stjórnvöld mundu kannski hafa vit á því að láta þetta mál bara liggja óhreyft, enda ekkert í gangi þannig séð. Þá kemur nýjasta útspilið. Hæstv. utanríkisráðherra reynir að slíta viðræðum með bréfi en hafði sem betur fer ekki erindi sem erfiði. Bréfið er svo loðið og óskýrt að fólki ber ekki saman um hvað í því standi. Ég held að markmiðið hafi verið að slíta viðræðunum, mér finnst ráðamenn tala þannig, að minnsta kosti gerðu þeir það í upphafi. En það er alveg ljóst að ESB skilur bréfið ekki þannig að viðræðum hafi verið slitið heldur séu þær áfram á ís.
Við höfum rætt það hér í dag og ég skil ekki frekar en aðrir af hverju stjórnvöld voru að stíga þetta umdeilda skref og senda þetta undarlega bréf. Samt hefur ítrekað komið fram í máli utanríkisráðherra og forsætisráðherra að verið sé að skýra afstöðu Íslands og að eftir því hafi verið kallað af hálfu Evrópusambandsins. Það var líka sagt í fyrra þegar þingsályktunartillagan um slit var lögð fram. Hæstv. utanríkisráðherra segir í dag að nú sé búið að núllstilla ferlið og að stjórnvöld séu búin að gera grein fyrir afstöðu Íslands í þessu máli. En ég rakti það áðan að við erum margoft búin að útskýra fyrir Evrópusambandinu hvernig staðan er og Evrópusambandið skilur það þannig að aðildarviðræðurnar séu á ís. Hvað þarf að útskýra? Hæstv. utanríkisráðherra og aðrir ráðherrar og embættismenn og sendiherrar á okkar vegum eiga í stanslausum samskiptum við fulltrúa erlendra ríkja og þeir geta mjög auðveldlega útskýrt fyrir þessu fólki hver afstaða Íslands er. Ég skil ekki hvað er flókið við það. Hvað var það sem Evrópusambandið skildi ekki og hvaða staða er það nákvæmlega sem við þurfum alltaf að vera að útskýra fyrir ESB? Krefst ESB þess að við slítum viðræðunum, er það málið?
Ef ég á að vera alveg heiðarleg viðurkenni ég hér að ég trúi því ekki að nýjasta útspilið eða þingsályktunartillagan sem lögð var fram í fyrra sé til komin vegna þess að Evrópusambandið hafi ýtt á það. Ég held að þetta séu tilraunir, að þessi tilraun til að slíta viðræðunum sé sýndarmennska hér til heimabrúks, að setja niður fótinn. En ef það er virkilega þannig að ESB hefur ítrekað kallað eftir svörum frá Íslandi vil ég fá upplýsingar um það. Hvaða óskir eru þetta? Hvaða kröfur eru þetta? Hvar hefur þetta komið fram? Það hljóta þá að vera einhver samskipti skráð, tölvupóstar, bréf, samtöl, fundir. Ef það er ekki rétt er verið að ljúga að okkur. Ef ESB hefur ekki verið að kalla eftir einhverjum útskýringum á stöðu okkar og hvert við ætlum er hreinlega verið að ljúga að okkur. Ég vil bara fá það fram í dagsljósið. Ég kalla eftir því. Ég geri það kannski með nákvæmari hætti síðar vegna þess að mér finnst þetta vera alvarlegt. Mér finnst ekki hægt að skjóta sér á bak við mismunandi afsakanir.
Síðan er annað sem ég velti fyrir mér. Maður skilur hvorki upp né niður í þessu máli þannig að maður er að reyna að búa til einhverjar leikfléttur sem ekki eiga við rök að styðjast. En ég velti fyrir mér samt hvort síðasti leikurinn sé kannski útpældari en við héldum í fyrstu. Getur verið að utanríkisráðherra sendi óskýr bréf til Brussel í þeirri von að sambandið túlki það sem ósk um slit á viðræðum? Þá er það hið vonda ESB sem sleit viðræðunum. Kannski var bréfið ekki svo illa samið eftir allt saman. Annaðhvort er þetta ótrúlega klaufalegt skref þar sem menn vissu í rauninni ekkert hvað þeir voru að gera eða plott sem miðaði að því að senda eitthvað nógu óljóst til Brussel til að hægt væri að segja hér heima að ekki væri um slit að ræða, en þó þannig að ESB gæti hugsanlega túlkað bréfið sem ósk um slit. Það er kannski svolítið langsótt, en hvað á maður að halda? Það stendur ekki steinn yfir steini í röksemdafærslum hæstv. utanríkisráðherra.
Mikið hefur verið rætt hér um þjóðaratkvæðagreiðslu og svikin kosningaloforð. Nú getur maður svo sem sagt að kannski verði þessir flokkar, og sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, að eiga það við sig og sína kjósendur ef þeir ljúga að þeim. En þetta er kannski samt aðeins flóknara en það. Það er ástæða fyrir því að starfsstéttir setja sér siðareglur. Skítnum er nefnilega smurt jafnt yfir alla. Og þegar stjórnmálamenn ljúga að kjósendum setur það alla stjórnmálamenn niður. Það er óréttlátt en þannig er það. Þegar stjórnmálamenn haga sér eins og vitleysingar þá setur stéttina niður. Við berum ábyrgð, stjórnmálamenn, og sérstaklega ráðherrar, og ég vildi óska þess að sú stjórn sem nú situr mundi fara að umgangast vald sitt af meiri ábyrgð. Og einhver æsingur hér í ræðustól þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins kallar hér fram að meiri hlutinn ráði, það er náttúrlega ekki boðlegt. Ég bara trúi því ekki að þjóðin sætti sig við svona vinnubrögð.
Ég ætla ekki að eyða tíma hér í að ræða þessa þingsályktunartillögu, að ráðherra þori ekki að fara með málið i gegnum þingið og hvort hann þurfi yfir höfuð samþykkt þingsins fyrir því að slíta viðræðum. Nú er komið í ljós að það er ekkert verið að slíta viðræðum, þannig að næsta mál sem við tökum væntanlega fyrir hér í þessu sambandi varðar þá þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér sýnist alveg ljóst að þjóðin kallar eftir því að fá að hafa eitthvað um þetta mál að segja og við verðum að gefa henni færi á því, og ég trúi ekki öðru en að þingið geri það því að það er nú sem betur fer þannig að það sem sagt var fyrir kosningar var tekið upp og það er hægt að spila það aftur og aftur. Það er í rauninni alveg óskiljanlegt hvernig menn fara undan í flæmingi hvað það varðar, og þessi orðhengilsháttur og annað slíkt er ekki boðlegt.