Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Mér þykir einkar vel til fundið hjá hv. þingmanni að kalla eftir því að hæstv. utanríkisráðherra Gunnar Bragi Sveinsson leggi fram gögn því til staðfestingar að Evrópusambandið hafi óskað eftir skýringum á afstöðu Íslendinga. Þegar ekki er hægt að taka mark á yfirlýsingum ráðherrans því þær breytast frá einu viðtali til annars er eðlilegt að kallað sé eftir skriflegum gögnum til staðfestingar á því sem hann heldur fram í þinginu því að orðum hans óbreyttum er ekki hægt að trúa.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún búi svo vel að skilja þá útleggingu að Ísland hafi ekki dregið aðildarumsókn sína til baka en sé ekki umsóknarríki. Getur þingmaðurinn komið þeim staðhæfingum sem standa upp úr stjórnarliðum hverjum á fætur öðrum heim og saman? Er hægt að vera með gilda aðildarumsókn en vera ekki umsóknarríki í huga þingmannsins? Getur verið að það sé þessi afstaða sem ruglar svo Evrópusambandið í ríminu að þeir þurfa að segja á blaðamannafundi í dag að þeir hafi ekki áttað sig á því hvað sé að gerast á Íslandi og ætli alls ekki að skipta sér af því? Hefur þingmaðurinn áhyggjur af því að á þeim blaðamannafundi fékkst ekki svar við því hvort það væri afstaða Evrópusambandsins eftir þessi bréfaskipti að hægt væri að hefja viðræður á ný af Íslands hálfu ef landið svo kýs síðar meir?