Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Þetta er það sem við höfum líka verið að spyrja okkur. Til hvers erum við þá að standa í þessu ef þingsályktanir hafa ekkert gildi? Mér fannst kannski koma fram í dag í máli hæstv. utanríkisráðherra í upphafi að ef viðræðunum væri slitið þyrftu ný stjórnvöld eftir sem áður að leggja þingsályktunartillögu fyrir þingið ef hefja ætti aðildarviðræður að nýju. En ég spyr: Ef stjórnvöld geta slitið viðræðunum án þess að fara með það í gegnum þingið, af hverju þurfa þá ný stjórnvöld að fara með það í gegnum þingið ef þau vilja hefja aðildarviðræður? Af hverju förum við yfir höfuð með eitt eða annað í gegnum þingið? (Gripið fram í.) Þá getum við bara sleppt þessu. Hvað erum við þá að gera hérna? Það er svo dýrt að halda okkur alþingismönnum uppi. Til hvers erum við þá að þessu? Þetta er náttúrlega orðið mjög merkilegt.
Síðan er líka annað. Þjóðin kýs Alþingi, kýs okkur og ráðherra starfar í umboði þingsins. Enginn kaus hæstv. utanríkisráðherra. (Forseti hringir.) Hann var ekki kosinn sem utanríkisráðherra, hann var kosinn sem þingmaður og mér finnst að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) ætti að hafa það í huga. Ef það hefði verið atkvæðagreiðsla hér um hver ætti að verða hæstv. utanríkisráðherra á þessu kjörtímabili er ekki víst að það hefði orðið Gunnar Bragi Sveinsson.