Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Þetta er algerlega frábær kenning vegna þess að það er augljóst að þessi ákvörðun hefur verið tekin í einhverju bríaríi einhvers staðar. Menn hafa verið á tjúttinu og drifið í því að skella í eitt bréf til að leysa málið og hafa ekki séð fyrir afleiðingarnar af því, vegna þess að menn eru orðnir svo vanir því að geta sagt eitt og gert eitthvað allt annað. Við sjáum til dæmis kosningaloforðaflauminn um hrægammana, það átti nú aldeilis að taka þá og snúa þá niður en þegar menn hafa síðan tækifæri til að gera eitthvað í því sitja þeir hjá í atkvæðagreiðslum, þar sem á að taka raunverulega á þeim, eins og eftirminnilegt er orðið. Framsóknarflokkurinn hefur engu skilað í því efni. Menn koma digurbarkalega í kosningabaráttu og segja: Heyrðu, við ætlum að afnema verðtryggingu. Það er bara hægt að gera það eftir hádegið, eina sem þarf er viljinn. Og hverju eru menn að skila í því? Engu. Það er komin ein skýrsla og mér sýnist hún vera að fara sömu leið og slitatillagan fór í utanríkismálanefndinni hjá meiri hlutanum á síðasta ári, þ.e. í skúffuna, hina botnlausu skúffu sem ekkert finnst í aftur.
Svona má lengi áfram telja. Já, ég tel það ekki ólíklega ástæðu að menn hafi ákveðið að koma með eitthvað til að sýnast, af því að það er það sem þessi ríkisstjórn gerir, hún er alltaf að sýnast en skilar engu.
Það sem ég verð líka að nefna er að ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur á ásýnd og ímynd Íslands. Við erum algerlega og fullkomlega háð viðskiptum við útlönd, við erum mjög háð þeim og við viljum líka vera opið land, við viljum stunda alþjóðaviðskipti og ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur á orðspor okkar sem hér búum, allur þessi vandræðagangur og líka fáheyrð ummæli (Forseti hringir.) stjórnmálamanna sem tilheyra stjórnarflokkunum um Evrópusambandið og ríkin innan þess.