Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ef það ætti að gerast að menn ættu að núllstilla og stoppa núna og spyrja þjóðina um næstu skref væri það alveg stórkostlegt stílbrot hjá þessari ríkisstjórn, vegna þess að þá væri hún raunverulega að efna kosningaloforð sem gefin voru. Það væri áhugavert að sjá hvort menn mundu gera það, því að það er eina vitið. Hreinsum okkur alveg af fortíðinni, setjum hana til hliðar og horfum á núið. Við erum stjórnmálamenn sem viljum vinna vinnuna okkar vel, við viljum vera í góðu sambandi við fólkið í þessu landi. Hvað gerum við við 55 þúsund undirskriftir Íslendinga sem óska eftir því við okkur að fá aðkomu að einhverju máli? Hvað gerum við við það? Við hlustum auðvitað á það og verðum við þeim óskum, vegna þess að þannig eigum við að vinna inn í framtíðina.
Stjórnmálin hafa breyst, þau hafa breyst mjög mikið. Þau hafa breyst þannig að menn vilja ekki lengur afgerandi frekjukallaleiðtoga, eins og áður, og menn vilja aukna aðkomu að stórum ákvarðanatökum. Og það er eðlilegt að verða við því. Við gerðum töluvert af því á síðasta kjörtímabili og ég held að það hafi gefist vel. Það er þannig að þá verður maður stundum undir en það er líka allt í lagi, vegna þess að við fórum rétt að málinu og fólkið í landinu fékk að ráða. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að klára aðildarviðræðurnar. Þótt ég setji kannski einhverja fyrirvara við endanlegar niðurstöður þeirra er ég þeirrar skoðunar að við eigum að spyrja þjóðina um niðurstöðuna og ég mun una þeirri niðurstöðu. En þessi ríkisstjórn virðist ekki þora í það.