144. löggjafarþing — 81. fundur,  18. mars 2015.

skrifleg svör.

[15:00]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1068, um skattstofna, gjöld og markaða tekjustofna, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Einnig hefur borist bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 909, um aðgerðir gegn mansali, frá Svandísi Svavarsdóttur.