144. löggjafarþing — 81. fundur,  18. mars 2015.

beiðni um komu ráðherra á fund atvinnuveganefndar.

[15:03]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég ítreka þá beiðni sem hér hefur komið fram frá hv. þm. Kristjáni L. Möller og ég tel það sé mjög mikilvægt að brugðist sé við þessu strax. Þetta er mjög alvarlegt mál sem felur í sér vonda stjórnsýslu, ekki bara það að ráðherra mæti ekki, heldur hvernig aðilar tengdir málinu eru venslaðir forustu Sjálfstæðisflokksins. Ég tel mjög brýnt að við stöndum í fæturna gagnvart framkvæmdarvaldinu sem hefur vaðið hér yfir Alþingi á skítugum skónum og heldur því fram að Alþingi hafi ekki neitt vægi. Þetta er enn ein birtingarmynd þess og það er einnig mjög brýnt að forseti beiti sér af fullum þunga í þessu máli og hafi forustu um að þinginu sé sýnd einhver virðing af framkvæmdarvaldinu.