144. löggjafarþing — 81. fundur,  18. mars 2015.

beiðni um komu ráðherra á fund atvinnuveganefndar.

[15:05]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill eingöngu segja það að hann þekkir ekki nákvæmlega málavöxtu í þessu tiltekna tilviki en mun reyna að kynna sér það með því að ræða meðal annars við forustu nefndarinnar. Ég vek að öðru leyti athygli á því að formaður atvinnuveganefndar, hv. þm. Jón Gunnarsson, er hér viðstaddur og heyrir þau tilmæli sem beint er til nefndarinnar.