störf þingsins.
Hæstv. forseti. Eins og margir vita hefur fjármögnunarfyrirtækið Lýsing tapað nokkrum dómsmálum á undanförnum mánuðum og árum. Um er að ræða mál sem rekin hafa verið bæði fyrir Hæstarétti og einnig í héraðsdómi. Oft er um að ræða mál sem hafa fordæmisgildi fyrir aðra lánasamninga er hafa verið gefnir út hjá fjármögnunarfyrirtækinu.
Fyrir stuttu tapaði Lýsing tveimur dómsmálum vegna gengistryggðra lána í Hæstarétti Íslands. Talið er að dómarnir geti haft áhrif á allt að tíu þúsund lánasamninga. Vegna niðurstöðu dómstóla sendi Lýsing frá sér yfirlýsingu til viðskiptavina og þeirra er málið varðar. Þar á bæ telja menn að dómarnir hafi skýrt frekar réttarstöðuna varðandi mikilvæg álitaefni. Telur Lýsing að sætta megi ýmis ágreiningsmál um endurútreikning gengistryggðra samninga á grundvelli laga, samningsskilmála og fenginna fordæma í Hæstarétti. Jákvætt er að einhver skilningur sé kominn fram innan Lýsingar, skilningur á að hluti lánasafnanna hafi verið ólögmætur og fram skuli fara endurútreikningur á þeim málum sem ágreiningur er um nú þegar.
Neikvætt er, og í raun óásættanlegt, að ætla að tveir til þrír mánuðir séu í að endurreikna þau lán. Þeir sem telja sig eiga rétt á endurútreikningum á lánum sínum vegna þessara dóma eiga að sækja um það á þjónustuvef Lýsingar. Um leið og óskað er eftir endurútreikningum skal afsala sér fyrri endurútreikningum hafi þeir átt sér stað. Það er afar bagalegt.
Það að einstaklingar skuli þurfa að sækja um endurútreikning vegna þessara lána er alls ekki í lagi. Í íslenskum lögum kemur meðal annars fram að fjármögnunarfyrirtæki og fjármálastofnanir eigi að hafa frumkvæði að endurútreikningi vegna neytendalána, sem meðal annars eru bundin við gengistryggingu, það á jafnframt við lánasamninga og eignaleigusamninga sem gerðir hafa verið vegna kaupa á bifreiðum til einkanota, og hér vísa ég í lög nr. 38/2001.
Við þessar aðstæður er afar brýnt að eftirlitsaðilar á markaði, eins og Fjármálaeftirlitið, mundi benda Lýsingu og öðrum fjármálafyrirtækjum á ákvæði þessara laga.