144. löggjafarþing — 81. fundur,  18. mars 2015.

störf þingsins.

[15:36]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langar að beina orðum mínum til hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar varðandi umfjöllunarefni sem hv. atvinnuveganefnd hefur haft með höndum og varðar ívilnunarsamning við Matorku, þann samning sem hefur verið til umræðu í fjölmiðlum og er upp á rúmar 700 millj. kr. Fram hefur komið hjá Landssambandi fiskeldisstöðva að um sé að ræða samning sem skekkir verulega samkeppnisstöðu þeirra aðila sem eru með atvinnurekstur á sama sviði.

Nú er það svo að staðfest hefur verið að einn eigenda fyrirtækisins kom á fund nefndarinnar meðan málið var til umfjöllunar en sá situr í laganefnd Lögmannafélags Íslands og sá ekki ástæðu til að geta þess sérstaklega eða vara nefndina við, ef svo má að orði komast, að um hagsmunaárekstur gæti verið að ræða. Nú liggur fyrir að ráðherra gerir samninginn með fyrirvara um samþykkt þess frumvarps sem liggur fyrir hjá nefndinni þannig að það má segja að framhald málsins sé heldur betur í höndum hv. atvinnuveganefndar. Hv. formaður nefndarinnar, Jón Gunnarsson, hefur tjáð sig ítrekað í fjölmiðlum um þetta mál.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvaða skoðun hann hafi á þeirri stöðu sem upp er komin. Þarna vakna fjöldamargar siðferðislegar spurningar og sannarlega er full ástæða til að fara gaumgæfilega yfir þær. Ég spyr hv. þingmann hvort hann sé tilbúinn að standa að því að endurskoða málið í hörgul, fara sérstaklega yfir siðferðisleg álitamál en ekki síður spurningar um frændhygli og pólitíska spillingu sem hafa komið upp í umræðunni.