Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra hefur haft heilan dag og allan mannafla utanríkisráðuneytisins til að finna eitt fordæmi (Utanrrh.: Ég bara gleymdi því.) fyrir athöfnum sínum. Hann hefur ekkert dæmi fundið þar um. Hann er enda algerlega dæmalaus. Og um svona athæfi, að ráðherra (Gripið fram í.) fari gegn þingsályktun þingsins í utanríkismálum, er ekkert dæmi að finna í íslenskri þingsögu eða danskri vegna þess að þetta er algerlega fordæmalaust rugl. (Utanrrh.: Rugl.) Þess vegna hlýtur maður að spyrja utanríkisráðherra á þessum tímapunkti: Getur Evrópusambandið annað — þegar forusta utanríkismálanefndar og forseti Alþingis hafa áréttað að það er rétt sem Ásmundur Einar Daðason og Vigdís Hauksdóttir segja í þingsályktunartillögu sinni að enginn nema Alþingi getur afturkallað umsóknina — getur Evrópusambandið þá komist að nokkurri annarri niðurstöðu en þeirri að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er í fullu gildi? Getur Evrópusambandið komist að nokkurri annarri niðurstöðu, hæstv. ráðherra?