144. löggjafarþing — 81. fundur,  18. mars 2015.

Evrópumál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:40]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er eitt athyglisvert í þessu meinta andsvari hv. þingmanns, hann kýs að svara ekki lykilspurningunni. Hvers vegna í ósköpunum gat hann ekki klárað eina stóra málið sem honum var falið sem ráðherra, að gerast aðili að Evrópusambandinu?