framtíðarsamskipti Íslands og Evrópusambandsins.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég held að það hafi komið klárlega fram fyrir nokkuð löngu, ekki síst þegar við birtum Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í ríkisstjórn, hvernig við ætluðum að halda á samskiptum okkar við Evrópusambandið og Evrópuríki. Við erum að sjálfsögðu hluti af Evrópu og verðum það áfram. Ég hef mikinn áhuga á að styrkja það samstarf sem við eigum, bæði tvíhliða við Evrópusambandið og einstök Evrópuríki. Ég hefði gjarnan viljað við yrðum meira áberandi þegar kemur að stofnunum sem staðsettar í Evrópu eins og Evrópuráðinu, ÖSE og fleiri slíkum.
EES-samningurinn er sá samningur sem veitir okkur aðgang að innri markaðnum, samningur sem ég held að sé til mikilla hagsbóta fyrir Ísland eins og staðan er í dag. Honum fylgja ákveðnar skyldur og ákveðið hlutverk, ábyrgð sem við verðum að axla. Það er ákveðinn sveigjanleiki í samningnum líka sem gerir að verkum að Alþingi getur gripið inn í, svo dæmi sé tekið eða eitthvað slíkt. Við þurfum hins vegar að fá tækifæri til þess að koma fyrr að upplýsingagjöf og öðru slíku um samninginn á fyrstu stigum. Það getum við gert, við höfum heimildir til þess. Við þurfum hins vegar til þess bæði fjármagn og mannskap að sjálfsögðu til þess að það geti allt gengið eftir. Samskipti okkar við Evrópu og Evrópusambandið munu byggja á þeirri stefnu sem við höfum lagt fram og EES-samningurinn, með öllum þeim kostum og göllum sem fylgja honum, verður okkar tenging við Evrópu að mínu mati.
Ég get náttúrlega ekkert spáð um hvað gerist í framtíðinni frekar en aðrir. En eins og staðan er í dag þá held ég að þetta sé það besta sem við höfum varðandi viðskipti og þjónustu og annað við bandalagið og inn á þennan markað ásamt Noregi og Liechtenstein.